16.05.2007 23:24:18 / systkinasystkin
Við ætlum að fara í smá pásu en við byrjum
einhvern tímann seinna aftur en allavega skrifa eitthvað
seinna þegar við byrjum aftur.
Kveðja Steini
»
04.05.2007 14:30:31 / systkinasystkin
Hæ þetta er steini
Það er nú allt of langt síðan ég bloggaði síðast
en það er ekki búið að gerast mikið síðan að ég bloggaði síðast
nema það að við fórum til Englands man ekki alveg hvaða
mánaðardag það var
en það var geðveikt gaman
þar.
Svo var pabbi minn að fá mótorhjólið sitt það er
geðveikt flott en ég á eftir að vera hnakkaskraut hjá honum(sitja
aftan á) en vonandi fæ ég að gera það bráðum.
En nenni ekki að blogga meira núna en varð að
gera eitthvað inn á þessa síðu annars verður hún dauð.
En allavega blogga aftur seinna.
»
03.02.2007 12:10:29 / systkinasystkin
»
16.01.2007 15:20:59 / systkinasystkin
»
08.01.2007 21:26:49 / systkinasystkin
Hæjj 


Svona voru áramótin 
Á áramótunum vorum við hjá pabba og hann keypti fullt af
flugeldum. En ég sprengdi eiginlega ekki mikið Steini sprengdi
miklu meira en ég. En ég var alveg sátt við það. Það sem við fengum
að borða var kalkúnn með fyllingu. Hann var mjög góður
En þegar
við vorum búin að borða fórum við Steini út að sprengja allt
smádraslið og hann var að grínast einhvað í mér og það var þannig
að hann var með fullt af froskum og var að kasta þeim út um allt og
ég hélt að einhver væri að stríða okkur og svo sagði hann mér að
þetta hafi bara verið hann og ég skammaðist mín alveg ógeðslega
mikið
En þegar við vorum búin að sprengja allt smádraslið fórum
við út að horfa á brennur og það var gaman en við sáum líka
einhverja löggubíla og einhvað svaka svaka. Þegar við vorum búin að
fara á brennurnar fórum við inn að horfa á skaupið og það var
eiginlega ekkert skemmtilegt og maður fattaði ekki sumt 
En
allavega svo þegar við vorum búin að horfa á skaupið fórum við og
gerðum okkur klár og tókum svo alla flugeldana og sprengdum þá alla
örugglega á met tíma. En þegar við komum inn lagðist ég í sófann og
var að horfa á Austin Powers og það var gaman en þegar það var búið
fórum við í heimsókn til vinafólk pabba og konu hans og þegar við
komum fengum við að fara í fartölvu og vorum inná msn og inná leik
sem heitir skissa og er inná leikjaneti. En þegar við fórum sem var
nú svolítið seint klukkan 3-4 að morgni, fórum við inn og fórum að
klæða okkur úr og þegar ég fór upp í rúm sá ég einhverja stráka að
sprengja fyrir utan og var bara að horfa á þá og fór svo að sofa um
leið og þeir voru búnir með allt og þá var klukkan orðin5. En svona
var þá dagurinn.
Þrettándinn:
Á þrettándanum var ég að gista hjá Hildi vinkonu minni og
það var gaman við fórum á brennu klukkan hálf 6 og það var gaman
við Hildur vorum með risa stjörnuljós og vorum einhvað að leika
okkur ,eð þau en það var alveg hræðilega erfitt að kveikja á þeim
út af því að þau voru svo gömul og höfðu verið keypt
fyrir tveimur árum. En það var alveg gaman við hittum Guðnýu,
Lilju og pabba hennar Guðnýar semsagt bekkjasystir mín og Lilja er
í hinum bekknum. En þegar brennan var búin fórum við heim til
Hildar og gerðum okkur klárar til að fara að sofa. Þegar við vorum
búnar að gera okkur klárar sofnuðum við. En daginn eftir fór ég í
kaffiboð og það var mjög skemmtilegt. En nenni ekki að skrifa meir
svo bæææææ....
-Inga
Pinga
»
03.01.2007 17:53:05 / systkinasystkin
Hæ og gleðilegt nýtt ár
þetta er skrítið að árið 2007 sé komið 2006 er búið að fljúga
svo hratt að mér finnst eins og ég fermdist í
gær.
Hvernig áramótin voru:
Við byrjuðum á því að borða kalkún svo þegar það
var búið sprengdum allt smádraslið í pakkanum en ég segi meira af
því á eftir hvað við keyptum fyrir mikið og hvað það var.Þegar við
vorum búinn af því fórum við með Balla og Finni(bræður Jorunnar) á
brennu í Breiðholtinu og ég hitti Smára þar þegar við vorum búin
þar þá fórum við á rúntin og vorum að leyta af öðrum brennum en svo
enduðum við í Grafarvoginum og horfðum á brennuna þar við
fórum samt ekki út úr bílnum við horfðum bara á brennuna úr bílnum
svo fórum við heim að horfa á skaupið fórum svo út og
sprengdum.
En við fórum svo heim til Rakelar eftir að við vorum búin að
sprengja og fórum svo heim að sofa eftir það.
En allavega ég sprengdi fullt af
sprengjum
keypti fyrir 10 þúsund kr. en pabbi keypti það en ég
bað um það sem hann keypti þannig að ég átti eitthvað í
pakkanum sem við keyptum hann keypti stærsta
fjölskyldupakkan.Kveðja: Steini
»
02.01.2007 17:20:04 / systkinasystkin
Hæ Inga hér !!
Hæ í dag var gaman við fjölskyldan nema pabbi fórum út að labba
og við fórum í Hagkaup,BT,Bónus og World Class og það var bara
gaman en það var ekki gaman þegar við fórum heim á leið út af því
að það var svo sleift !!!! En við náðum alveg að komast heim en
þegar við vorum alveg að verða komin hittum við Rakel og hún var á
róló með krakkana sína. Við stoppuðum þar í smá tíma og fórum svo
heim. En þegar við komum heim var ég bara að setja límmiðana
mína í límmiðabókina. Svo fór ég bara í tölvunna. En nenni ekki að
skrifa meira svo bara bææææjjjj !
-Inga
»
29.12.2006 18:39:24 / systkinasystkin
Hæ
Hæjj sorry hvað ég er búin að vera léleg að skrifa 


En ég skal bæta það upp ! En já ég ætlaði að fara að tala um
hvað það var rosalega gaman um jólin !!!! Ég fékk 21 gjafir og frá
mömmu fékk ég mp3 og svona sem maður lætur á síma og á því stendur
INGA. Svo frá pabba og kærustunni hans (Jórunni) fékk ég veski,
slæðu, nærföt, náttföt og gjafabréf í smáralindina upp á 5000 kr.
Frá stjúpsystkinunum mínum fékk ég baðslopp. Ég fékk líka milku
miklu miklu miklu miklu meira. En allavega var áðan að vesenast með
mp3 spilarann minn og var að láta eitthver lög inná hann. En
ætla að fara að drífa mig að vesenast aðeins meira !!!
Bæjjjjj -inga
»
29.12.2006 16:37:16 / systkinasystkin
Þetta gengur ekki ég er ekki búinn að blogga lengi en ég
fékk helling af jólagjöfum og ég fór í skötu á þorláksmessu og
smakkaði.En sagði samt í seinasta bloggi að skata væri versti matur
í heimi en hún var allt í lagi en samt ekki besti matur í
heimi.
Kveðja Steini
»
23.12.2006 17:17:08 / systkinasystkin
Hæ Steini hér
Pælið í því marr jólin eru á morgunn nú er
Þorláksmessa það er gott að ég fer ekki í skötu það er versti matur
í heimi.
En allavega hlakkar ekki öllum til
jólanna.
»
22.12.2006 21:10:01 / systkinasystkin
Hæ Inga hér !
Hæ í dag er ég búin að gera mikið þegar ég vaknaði fór ég að
gera mömmukökur. Þegar ég var búin að því fór ég að hjálpa til við
að taka til og svo fórum við í afmæli til frænda míns og svo er ég
komin hingað ! En já bæ !
»
21.12.2006 19:47:34 / systkinasystkin
Í dag var ég í jólagjafaleiðangri vaknaði klukkan 11 til að fara
í Kringluna og keypti jólagjafir handa Smára,Ragga og
Arnóri svo þegar við vorum búin þar fórum við í
Smáralindina.Þegar við vorum að fara úr Smáralindinni þá hitti ég
Aron sem er í bekknum mínum klukkan varorðinn 5 þegar við komum
heim og núna er ég að passa.
Bara svo þið vitið þá kann ég ekki að blogga þið
hafið svosem tekið eftir því.
Kveðja Steini
»
20.12.2006 12:39:03 / systkinasystkin
Ég var á jóla balli í gær var geggjað gaman dj sem var þarna var
allt í lagi hann var fyrst lélegur svo kom kærastan hanns þarna þá
var hann miklu betri af því að hún valdi lögin og hann spilaði
þau.
Já ég gleimdi að segja Allir að skrifa í
gestó
Kveðja steini
»
19.12.2006 15:51:44 / systkinasystkin
»
18.12.2006 13:27:49 / systkinasystkin
»
Síður:
1 2 3